Fátæki malaradrengurinn og kisa - Grimmsbræður

Grimmsbræður

Fátæki malaradrengurinn og kisa

Empfohlen ab 7 Jahre. Laufzeit ca. 8 Minuten. Sprache: Isländisch.
MP3 Hörbuch Download
ISBN 8728038436
EAN 9788728038437
Veröffentlicht Januar 2022
Verlag/Hersteller SAGA Egmont
Übersetzer Übersetzt von Theódór Árnason Vorgelesen von Árni Beinteinn Árnason
Familienlizenz Family Sharing
Leseprobe öffnen

Auch erhältlich als:

epub eBook
1,99
1,99 inkl. MwSt.
Teilen
Beschreibung

Fátækur malari ákveður að gefa einum af sveinum sínum mylluna sína, enda orðinn gamall og þreyttur. Sá skyldi hreppa hnossið sem færði honum besta reiðskjótann. Eldri sveinarnir tveir stinga þann yngsta af, enda töldu þeir hann óttalegan bjálfa og ekki verðugan þess að eiga mylluna. Aleinn og ráfandi um skóginn hittir sá yngsti, sem nefndur var Bjálfa-Björn, bröndóttan kött sem lofar að gefa honum þann besta gæðing sem hann nokkru sinni hefur séð. Í staðinn þurfi Björn að ganga í þjónustu hans næstu sjö árin. Björn tekur boðinu og þjónustar bröndótta köttinn án þess að fá svo mikið sem nýja flík. Þegar Björn kemur að myllunni að sjö árum liðnum er hlegið að honum enda trúa hinir sveinarnir því tæplega að eftir þrjá daga verði Birni færður besti gæðingur sem sést hefur. Annað kemur þó á daginn og bröndótti kötturinn stendur við loforð sitt og gott betur. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.